Brúðkaupsveisla

Vigne Matte

Brúðkaupsveislan fer fram á vínbúgarðinum Vigne Matte sem við féllum fyrir með sitt stórkostlega útsýni, fallegum sal og dásamlegum garði fyrir „aperitivo“.

Við munum finna smárútur til þess að ferja gestina okkar á staðinn og til baka svo enginn þurfi að keyra sveitaveginn þangað upp, sérstaklega þar sem við búumst við því að sem flest drekki í takt við brúðguman.

Scroll to Top