Hérna er stuttur listi yfir staði sem við mælum með að heimsækja á meðan þið eruð á svæðinu.
Veitingastaðir
Osteria Antica Guizza er hverfisstaður sem við elskum að rölta á þegar við erum í heimsókn hjá foreldrum Giuliu, frábærar snyttur (í. crosstini) og freyðivínsglös. Rólegt og þægilegt andrúmsloft og dásamlegt útsýni ef maður fær borð með útsýni. Hér er vatnið sótt í kranann, og þjónarnir koma ekki með vatn. Vatnið er hins vegar næstum jafn gott og heima í sveitinni á Stapa! (Maps location)
Osteria di Collalbrigo er nokkuð fínni staður, ekki eins ódýr og hverfislegur en maturinn er þess virði. (Maps location)
Casa di Giorgio er staður sem okkur þykir skemmtilegt að fara á, eigandinn er fyndinn fullorðinn maður sem þylur upp matseðilinn í stað þess að prenta hann og hann bíður þér að velja tungumál, frá Ítölsku, Frönsku, Þýsku, Spænsku eða Ensku ef við munum rétt. Góður matur og mjög skemmtileg upplifun. (Maps location)
Il Capitello er mjög huggulegur og nokkuð fínn og elegant veitingastaður sem við spörum fyrir skemmtilegri tilefni. (Maps location)
Maddogs er hamborgarabúlla í miðbæ Conegliano sem við mælum með ef fólk vill burger. Við komum við hérna á fyrsta stefnumótinu okkar því við vissum ekki hvort við værum að hittast í drykki eða mat. (Maps location)


Athyglisverðir staðir að heimsækja
Lago Morto er dauðavatn eða tilbúið stöðuvatn sem er hluti af virkjunarkerfi en vatninu er dælt upp á nóttunni og svo kemur það aftur á morgnana. Þess vegna er vatnið ískalt og hitastigið við vatnið talsvert kaldara en annars staðar á svæðinu, þess vegna elskum við að fara þangað. Það eru vissulega nokkuð margar pöddur þarna en fæstar gera nokkuð mein og bara spurning um að venjast. (Maps location)
Castello di Conegliano er kastalinn í bænum, þetta er meðal staðsetninganna sem við kíktum á á fyrsta stefnumótinu okkar. (Maps location)
Piazza Giovanni Battista Cima er torg í miðbæ Conegliano þar sem íbúar setja upp skautasvell á veturna og selja grillaðar kastaníuhnetur á haustin. Við hittumst fyrst einum af börunum við þetta torg, við hliðina á styttu af Giuseppe Garibaldi og fengum okkur drykk á Al Municipio. (Maps location)
Bortolin Angelo er uppáhalds vínbúgarðurinn okkar og við erum nokkuð heppin að hafa kynnst eigendunum þegar við erum með foreldrum Giuliu á bátnum þeirra en Cesare er með bátinn sinn við sömu bryggju og bátur eiganda þessa vínbúgarðs er við. Við mælum heilshugar með að heimsækja búgarðinn þeirra, eða að drekka vínið þeirra sem er mjög oft fáanlegt í glasavís á veitingastaðnum Osteria Antica Guizza. (Maps location)
Við mælum eindregið með að fólk hafi bílaleigubíl til umráða.
Almenningssamgöngur eru erfiðar að læra á og sjaldséðar og leigubílar svo gott sem ekki til.